Í góðu lagi Vinnustaðavottun

„Í góðu lagi“ er nýtt vottunarkerfi sem sýnir að vinnustaðir fari eftir
kjarasamningum og reglum vinnumarkaðarins. Það byggir á trausti, gagnsæi og sanngirni.

Verkefnið hófst sem samvinna milli Bárunnar, stéttarfélags og Sölufélags
garðyrkjumanna og fékk strax góðar undirtektir. Framsýn stéttarfélag kom svo inn í verkefnið. Það eru sameiginlegir hagsmunir allra aðila að kjör og
aðbúnaður starfsfólks sé í góðu lagi.

Framkvæmdin er að vinnustaðir eru heimsóttir og farið yfir þau gögn sem til þarf. Fyrir liggur metnaðarfullur verkferill sem nær til allra þátta er viðkemur framsæknum vinnustöðum. Sjá fylgiskjal

Með þessu verkefni byggjum við traust og samvinnu sem leiðir til heilbrigðari vinnumarkaðar og bættra kjara launafólks. Stofnuð var sameiginleg nefnd skipuð fulltrúum frá hlutaðeigandi stéttarfélögum og Sölufélagi garðyrkjumanna, sem vann að undirbúningi sérstakrar vottunar.

Þetta er tilrauna og þróunarverkefni með möguleika á útvíkkun. Nafnið byggir á svipaðri hugmynd og danska OK-merkið og leggur áherslu á að tryggja öryggi til mannsæmandi launa.
Vonir standa til að vottunin „í góðu lagi“ geti náð útbreiðslu til annarra
starfsgreina ef vel tekst til.

Vottaðar stöðvar

01.

Garðyrkjustöðin Friðheimar

Reykholt, Bláskóabyggð, 806 Selfoss

02.

GarðyrkjustÖðin Hveravellir

Hveravöllum, 641 Húsavík

03.

Gróðrastöðin Ártangi

Ártanga, 805 Selfoss

Væntanlegar vottanir

Fleiri fyrirtæki eru nú þegar í vottunarferli og munu bætast við listann á næstu vikum og mánuðum. Þau hafa tekið skrefið til að bæta starfsumhverfi sitt með því að vinna að vottun í samræmi við viðurkennd viðmið.

Vottunin stuðlar að auknu gagnsæi, bættri vellíðan starfsfólks og sjálfbærari rekstri. Við hvetjum fleiri til að ganga til liðs við verkefnið – saman getum við skapað sterkara og heilbrigðara atvinnulíf.

Sækja um vottun

Skráðu þig í verkefnið okkar um vottun og styrktu starfsumhverfið þitt.

Kostir VOTTUNAR

Gagnsæi

Vinnustaðir okkar sýna að þau fylgja kjarasamningum með fullu gagnsæi.

Sanngirni

Við tryggjum sanngjörn laun og réttindi fyrir alla starfsmenn í samstarfinu.

Traust

Fyrirtæki sem fá vottun „Í góðu lagi“ sýna trúverðugleika og traust.

Stofnaðilar

Scroll to Top